ef lífið væri banani hvernig tökum við þá hýðið af !?
utthvað sneðugt...
10.01.2006 02:33:44 / marteinn

fljúgandi auglýsingaskilti...



þetta virðist ekkert svo stórt á þessari mynd en frá topp og niður er þetta skilti um 6 metrar, svaka flykki skal ég segja ykkur. flaug um koll vegna vanrækslu fyrri eiganda er búið að staðfest. mesta mildi að enginn var undir þegar þetta gerðist. en svo verður maður bara að leika pollýönnu og hugsa með sér "i bili er einu skilti færra til að þjónusta" þá getum við líka einbeitt okkur að uppsettningu í staðinn og auðvitað hinum skiltunum.



þetta er svo ramminn af því inni á verkstæði þegar það var tekið í sundur til viðgerðar...
þarna getið þið séð stærðarhlutföllin, gauti (vinstri) og siggi járnsmiður (hægri) og ramminn fyrir miðju...



» 6 hafa sagt sína skoðun

09.01.2006 20:13:37 / marteinn

veikur maður kominn í útvarp...

jæja, þá er maður kominn í gírinn fyrir nýtt ár. það hefur nú reyndar lítið gerst markvert í lífinu framan af því. ég byrjaði árið á því að klára upptökur á laginu "att sakna" sem ég er að gera með nonna, hallgrími og ástrós. svo hef ég verið að hljóðblanda plötuna hans stebba sem á að koma út 13.01 en ég held að það seinki eitthvað vegna þess að hann er enn að bæta við lögum. 8| en fyrir utan það hef ég verið að púla í vinnunni og hanga heima með einhverjar verur í mér sem skemmileggja heilsu. vúbbdídú :) því fall er fararheill, svo þetta veit bara á gott ár. ég fékk reyndar alveg furðulega hringingu í morgun ! gauti úr vinnunni spyr mig hvort ég sé sitjandi........flettiskiltið í hafnarfirði hafi fokið á fésið !!! ótrúlegt en satt ! og við erum að tala um enga smá smíði ! ég skal redda myndum af þessu á eftir... svo er ég byrjaður á að efna eitt af áramótaheitunum mínum sem er að gera "plötu" eða einhvern búnka af lögum sem kallast má með sama nafni... er svona farinn að fálma eftir lögum sem passa saman, á allt of mikið af þessu. svo er ég líka búinn að vera að innrétta íbúðina mína og er kominn með verulega kósí eldhús og stofu þó ég segi sjálfur frá. á þá bara forstofuna, ganginn og svefnherbergið eftir. ekki er langt í að hér fyllist síðan allt af kettlingum. zara er alveg eing og tröll þessa dagana og ELSKAR að láta nudda á sér bumbuna. ég er samt að vona sem mest að ég verði heima þegar þetta gerist til að getað hjálpað henni eins og mögulegt er. og ef maður er bara ekki kominn með útvarpsþátt. alveg fáránlegt hvernig þetta gerist stundum, okkur var boðið þetta vegna hiphop.is og ekki lengi að taka því. það þarf einmitt einhvern miðil til þess að beygja eyru ungs fólks frá grunnhugsuðum líkt og 50cent og gera eitthvað jákvætt og skapandi. svo virkar það vel með mánaðarlegu kvöldunum sem við erum með á pravdabarnum. það eina sem vantar er að koma síðunni aftur í gang. þátturinn kallast ORÐ og er milli 10-12 á miðvikudögum. við fengum sjálfir að velja dag og þótti þessi henta best. þá náum við til allra á meðan þeir eru edrú, óþunnir, komnir yfir mánudagsþunglyndið og farnir að hugsa um framtíðina. svo er alltaf eitthvað að gerast á fimmtudagskvöldum svo það hentaði ekki heldur. þátturinn er á FLASSfm (hræðilegt nafn, fær mann til að hugsa um skuggalegan mann í síðum svörtum frakka) 104.5 og hægt er að hlusta í gegnum flass.net. ....jæja, ég ætla að halda áfram að vera veikur.... skrifa næst eitthvað þegar ég er orðinn hress og kátur:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 17:15:02 / marteinn

jólafráhvörf og gamla árið gert upp...

jæja, þá er maður búinn að jafna sig eftir allt sykurtrippið um jólin og er lentur með báðar fætur í umhugsanir um næsta ár. ég var reyndar bókstaflega byrjaður að bulla í fólki um jólin. er ekki mikið að borða sykur, hef reyndar alveg skilið hann eftir í daglegri fæðu, svo ég var í nokkurskonar vímu eftir allt smákökuátið um jólin. amma gerir barasta alltof góðar kökur, gera jólin fullkomin að enda í jólaboði hjá henni og troða í sig :) þetta voru reyndar það sem kallast jól vinnuveitandans, aðeins einn almennilegur frídagur yfir hátíðarhöldin ! það var samt ánæjulegt að sjá að mörg fyrirtæki ákváðu að hafa lokað á þriðjudeginum en þó voru þau ekki nógu mörg. ég ákvað sjálfur að vinna alla dagana en þó á rúmlega hálfum hraða og eigi meira. það er alltaf nóg að gera hjá mér í vinnunni... ég neita samt að sleppa jólaandanum strax ! þessi jól voru án efa ein þau bestu í langan tíma, gjafirnar voru allar vel nýttar og fólkið eldhresst. meira að segja kisurnar voru í extra góðum fílíng. ég fékk líka að heyra eina bestu verslunarsögu sem ég hef heyrt frá honum gauta í vinnunni : hann fór í hagkaup í smáralind rétt fyrir jól að beðni ættingja síns frá siglufirði að kaupa tilboð með bubba, tvær nýjustu plöturnar hans og heimildarmynd sem fylgir með. gauti og vinur hans arka þar inn og biðja ungan afgreiðslumann um að beina sér að umræddu tilboði. drengurinn verður hugsi mikið en byrjar að tölta af stað og gauti og vinur í humátt á eftir. svo stansar drengurinn góði við rekka og segir að hér eigi allt með bubba að vera. við sjónina missir gauti greyið orðið og get ég sagt að honum vefst nú sjaldan tunga um tönn. afgreiðsumaðurinn var þá að benda á bubba byggir og hafði greinilega litla hugmynd um nafna hans morthens.:haha: frábær upplifun held ég. en í alvöru, erum við virkilega orðin svo upplýsingamettuð þjóð í dag að fólk getur komist upp með að vita hverjir þjóðþekktir menn eru ? erum við að verða líkt og bandaríkin þar sem fólk getur þulið upp uppáhalds sjónvarps- og tölvuleikjafígúrurnar sínar en veit varla hverjir skapa þjóðarmenninguna og flesta kima hennar ? steikt......djúpsteikt.. ! burtséð frá því góða fólki... hvað á maður svo að gera við næsta ár !? ég náði settum markmiðum þetta árið, sem var að ná fjárhagslegum stöðugleika, góðu húsnæði og byggja upp aðstöðu til að geta gert tónlist eins og mér dettur hún í hug :D það er nú reyndar best að ég skelli mér í sturtu og hugsi málið. ég veit samt að fyrstu tveir mánuðirnir fara í að vinna tónlist með ýmsu fólki. ég er í miðjum klíðum við að semja stórskemmtilegt lag með nonna og hallgrími sem er um söknuð hins fyrrnefnda á stúlku sem hann er í tygjum við en fluttist til svíþjóðar rétt fyrir jól. svo er það debut-platan hans stebba sem kemur út 13. jan, taka upp lagið sem ég er að gera með binna frenzy og klára masteringuna á "22skot" sem ég gerði með brjánsa svo við getum sett það í myndbandavinnslu. það er eitt magnaðasta lag sem ég hef náð að gera hingað til held ég :P svo hangir alltaf yfir mér að klára eitthvað af þessum lögum mínum til að henda þeim í útgáfu... þetta er frábært líf :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 01:29:39 / marteinn

úff púff og jólaandinn og fullnæging í útvarpi...

jæja, ég er ekki gleymdur í daglegu amsti. það er barasta búið að vera BRJÁLAÐ að gera í bæði vinnunni og persónulega lífinu. margt frábært og minna miður, en maður skeytir því bara litlu og heldur áfram með lífið. ætli jólaandinn hafi ekki náð að narta í rassgatið á mér í dag. ég er eiginlega búinn að vera alltof upptekinn af öllu í kringum mig til að huga að alvöru jólum en það tók góðan krók í dag. ég fór í Garðheima eftir vinnu og keypti jólatré handa mömmu. við að finna greniilminn fór að kitla í litla jólabarnið innra með mér. ég fór með það heim til mömmu á meðan hún var ekki þar og setti það upp og skreytti með hjálp frá gauta, vaska vinnufélaga mínum. strax og tré byrjaði að mótast fór jólaandinn að ná tökum fyrir alvöru, ég er barasta farinn að hlakka til :D enda ætla ég að taka því frekar rólega yfir hátíðirnar, pantaði mér meira að segja klukkutíma í nudd eftir vinnu á föstudag :P á dauða mínum átti ég vona fyrr en það sem í eyru mín streymdi er ég hlustaði á útvarpið í dag. gauti setur alltaf á hinn ágæta þátt "mín skoðun" á xfm og í einu auglýsingahlénu byrja þessar rosalegu stunur í kvennmanni. og svo byrja að heyrast titrarahljóð með og stunurnar stigmagnast sem enda svo með háværu öskri... því fylgir kona sem segir : "þessi fullnæging er í boði tantra"... ok, hvað er málið með þetta þjóðfélag. hef persónulega ekkert á móti kynlífi en þarf maður núna að heyra fólk fá fullnægingar ef maður vogar sér að kveikja á fjölmiðlum ! steiktur banani á pönnu :$ en hver er ég að dæma annan mann, ég breyti hvort eð er engum nema sjálfum mér :) talandi um kynlíf, ekki eru kisukrúttin mínir feimin með hvort öðru og stunda það af og til. og það er svo komið að zara er ólétt :D veit ekki alveg hve lengi en ég finn magann á henni vera orðinn stífari og breiðari, hún er svo nett fyrir. hlakka mikið til að sjá hvernig til tekst, þau eru svo ótrúlega miklir karakterar hvort fyrir sig, bæði andlega og líkamlega. hún fim, nett og gáfuð og hann alger kelirófa og með hjarta úr gulli; alltaf að þrífa manni í framan. en nóg um það, ég þarf víst að fara í háttin og safna kröftum fyrir morgundaginn. ég fékk einmitt skemmtilega hringingu í morgun frá bigga, öðrum eigandanum að fyrirtækinu, sem gaf mér lof fyrir vel unnin störf. ég er að ná að standa undir vonum og vel yfir það :D ekkert betra en að vinna fyrir menn sem hafa það í sér að segja manni það þegar maður er að standa sig vel. enda var mér líka fleygt út í djúpu laugina, tók við fyrirtækinu eftir tæplega þriggja vikna vinnu. ...... illt í hendinni, ég skrifa eitthvað sniðugt mjög bráðlega. gleðileg jól...;)

p.s. ég setti fyrsta lagið sem ég söng inn á lagasíðuna mína... hehe, vona að þið hafið gaman af, meira mun bætast á hana í jólafríinu mínu...

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 01:27:39 / marteinn

slysó og nfs...

þetta er blogg sem ég byrjaði á fyrir um viku síðar en ég hætti að skrifa vegna uppákomu. ekki þarf að fara fleiri orðum um það nema að ég lúri stutt í fortíðinni og brosi fram í framtíðina, ánægður í núinu :)

úff, hvar á ég að byrja... hendin á mér er víst eitthvað náttúrulega skrýtin. ég fór á slysó á mánudaginn eftir að hendin á mér bólgnaði og bólgnaði. venjulega fæ ég skrýtna þjónustu og nú var engin undantekning. eftir að hafa beðið inn á stofunni kom inn ungur læknir, eða nemi sá varla mun, og var hinn rólegasti. hann spurði hvað bjátaði á og ég sagði honum að eitt bein í hendinni hefði byrjað að lyftast einhverntíman en ég tók eftir því fyrir um viku, stuttu seinna byrjaði hendin að bólgna í kringum það. hann byrjaði að þreifa og varð frekar undrandi á svip, varð flóttalegur og sagðist þurfa að ráðfæra sig við annan lækni. eftir að ég hafði dottað inn á stofunni í tæplega hálftíma gengur inn eldri læknir og unginn á hælunum. hann kemur inn og byrjar að þreifa á hendinni ótt og títt, sem var ekkert ofboðslega þægilegt en ég skil hví hann varð að gera svo, og sagði unganum að hann sæi fulla ástæðu til að senda mig í röntgen. skrýtinn á svip yfirgaf hann stofuna og ég er sendur af unganum upp á næstu hæð í pósur fyrir gamla konu. eftir allt húllumhæið i kringum það er ég sitjandi á innri biðstofunni að lesa danskan andrés þegar unginn kemur til baka enn furðulegri á svipinn. hann spyr mig hvort ég kreppi hnefann eitthvað mikið eða loki hendinni og opni ótt og títt í vinnu eða öðru. ég segist auðvitað gera það því ég sé að vinna við skiltauppsetningu og þarf að höndla hin ýmsu tól við störfin. þá segir hann mér að þetta sé einhver bólga í slíðrunum utan um sinarnar sem liggja í vísifingur og löngutöng en hafi aldrei séð svoleiðis áður. venjulega er fólk með svokallaða sinaskeiðsbólgu en þetta sé ekki slíkt. þetta ætti að taka um 3-4 vikur að jafna sig og ég eigi, undir venjulegum kringumstæðum, að hvíla hendina í 4-5 daga. hann var þó frekar ósannfærandi í röddinni er hann sagði þetta. á leiðinni út heyri ég hann svo útundan mér vera að tala við einhverja aðra fyrir aftan mig og er að furða sig á þessu "ég skil þetta ekki, bólga ofan á hendinni". ég er sem sagt fríííííík og hef gaman að :P bólgan er farin en beinið vísar enn upp, ég tek því bara sem happamerki til annað kemur í ljós. svo komst ég í sjónvarpið um daginn. ég var við vinnu að skera plaggöt er vinnufélagi minn setur á nfs í útvarpinu. rétt þá er að halda áfram umræða um tölvuleiki og skaðsemi þeirra fyrir börn. ég finn að ég verð að hemja mig er ég skrifa þetta því ég er mjög ósáttur þegar ráðist er á eitthvað án nokkurar vitneskju nema einhvers sem þau sjá á skjá. börn eru barast akki nógu þroskuð í samskiptum til að geta útskýrt hví þau sækjast í þessa leiki og síðan situr þetta fólk saman við míkrafón og ræðir um hvernig hægt sé að banna þeim að koma nálægt þessu. FÁRÁNLEGT ! í fyrstu : þú getur ALDREI tekið eitthvað í burtu og vonast til þess að vandamálið lagi sig sjálft, ef þú hrifsar flöskuna af alkahólistanum að þá tekur hann bara næsta efni sem kemur honum í svipað ástand. annað : tölvuleikir geta verið mjög góð þerapía fyrir börn sem eiga við sálræna örðugleika að stríða, líkt og eftir að lenda í hjónaskilnað, einelti eða slíku. með þeim heldurðu vandamálinu á yfirborðinu og getur unnið með tilfinningar einstaklingsins í stað þess að hann bælir þær inni. líkt og brúðurnar sem þú mátt berja til óbóta hjá sálfræðingi eða boltarnir sem þú getur kramið til andskotans. það þriðja : af hverju spyrja "fullorðnir" sig aldrei "hvers vegna leita krakkar í tölvuleiki og ofbeldi" í stað "hvernig getum við komið þessu vandamáli frá augunum á okkur". lögmál orsaka og afleiðinga í kapítalískri fyrirmynd sem eftirspurn og framboð skýra þetta á svörtu og hvítu. ef ungu fólki, í stórum straumum, liði betur en virðist vera að þá værum við ekki með 50 cent á toppnum á vinsældarlistanum ! það er eftirspurn eftir slíku efni svo markaðurinn býr það til ! en hví ! svarið er mjög einfalt. léleg sjálfsmynd ungs fólks kemur af vanrækslu í uppeldi. gott uppeldi er byggt á traustum fjölskyldugrunni (þú ert öruggur um samskipti innan fjölskyldunnar) og uppbyggjandi gagnrýni á athafnir. þeir sem lenda svo í brotnum fjölskylduböndum (um 50% af öllum hjónaböndum í dag) missa undan sér grundvöllinn fyrir innra öryggi. fyrir þá sem vita hver þarfapýramídinn er (fél 102) þá er ágætt að hugsa til þess að hægt er að snúa honum við ! út frá því er auðvelt að komast að innri hlið málanna... allavegana :P ég hringdi í stjórnanda þáttarins og útskýrði fyrir honum mína hlið málsins. þótti honum þetta svo ágætis framtak að hann boðaði mig í viðtal morguninn eftir til að ræða málin í útsendingu NFS. það var svo sem allt gott og blessað með það nema að ég fékk ekki nema tæplega tíu mínútur til að útskýra mál mitt og ég fékk engan til að rökræða við sem er  mjög óhollt í slíkum málum. það er akkúrat það sem gerir fjölmiðla svona hættulega því þeir geta beint einni skoðun að þér án þess að nokkur geri sér grein fyrir því að allar hliðar teningsins sjást aldrei samtímis. þú ert mataður á skoðunum annars manns án þess að fá að svara fyrir þig. það er bara óhollt fyrir sálartetrið að ganga í gegnum svoleiðis upplifanir...

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 00:14:00 / marteinn

múmían...

ég er víst allur reyfaður og má ekki vera að hreyfa mig mikið en ég kem á morgun með nokkrar skemmtilegar sögur... meðal annars fór ég í viðtal í sjónvarpið...:P

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 01:25:11 / marteinn

einhenti maðurinn...

ég verð víst að geyma meginritstörfin þangað til á morgun. ég má víst ekki vera að hreyfa hendina neitt mikið í lyklaborðsstellingar fyrr en íbúfenið mitt hefur trallað um hana. ekkert slys sko, bara mikið álag held ég 8| ég gáttaði víst alla læknana á slysó í morgun en ég segi frá því seinna...:D

» 88 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 23:45:59 / marteinn

fiskifýluyoga, æpodd, og hetja vikunnar...

þetta hafa verið frekar biðburðarríkir 2 dagar skal ég segja ykkur. sko, föstudagurinn var frekar breiður í kokið en komst þó niður með lægni. ég byrjaði á að sofa yfir mig og mæta klukkan níu í stað átta en var þó samt að vinna í 12 og 1/2 tíma. ég náði ekki að taka hádegismat fyrr en klukkan níu :P ekkert nema gaman að upplifa sig sem batman týpa, keyra um bæinn og redda hlutum fyrir fólk í vandræðum. við náðum að setja upp skilti sem var 9x1 og annað sem var 5x0.5 laga auglýsingaskiltið okkar í bílabúð benna og sendast með hluti í hitt og þetta. ég útnefni nú ekki venjulega einhvern en ég á til með að titla "hetju vikunnar" sem er litli sköllótti maðurinn sem var með minna skiltið. hann var að opna búð sem var listagallerý/útgáfa/yogastöð og var nefnd því elegant nafni "Lafleur". :haha: sko það væri nú lítið fútt í þessu ef hér væri viðnumið. aðalsportið í þessu öllu saman, og gefur litla kallinum hetjutitilinn, var það að staðsetningin var alveg útúr kortinu, bókstaflega. hann skellti sér á húsnæði yst á grandanum, innan um járnsmiðjur, fiskverkun, tónlistarþróunarmiðstöðina og hin ýmsu fyrirtæki sem skapa allan þann hávaða sem þið getið ímyndað ykkur. 8| og ef fiskifýlan, járnbarningurinn, spúlið á plönunum, unglingar að öskra úr sér garnirnar og lemja á húðir og strengi, vinnutækin og samskonar hávaði nær ekki að dáleiða yogaiðkendurna og listunnendur að þá geta þau stólað á lágflug flugvéla sem fara í nákvæma línu yfir staðinn áður en þær lenda á reykjavíkurflugvelli. ég taldi allavegana fimm stykki á þeim rúmlega einum og hálfum tíma sem ég var þarna. í svo skæru ljósi verð ég að nafngreina þennan mann einskæra hetju í mínum augum því þetta myndi ég aldrei láta reyna á. :haha: verð að viðurkenna að fiskifýlan á staðnum var samt nokkuð leiðandi en hún skapaði víst meiri hausverk en uppljómun. morguninn eftir átti ég svo afmæli :D ég fékk aðeins þrjár gjafir þann dag og var mjög sáttur. ég byrjaði á að fá framandi hljóðfæri frá guðlaugu sem nefnist #####. alveg snilldarstykki sem ég er strax byrjaður að semja á. ótrúlega fallegt hljóð. og svo var ég var frelsaður, hallelúja ég var frelsaður af móður minni. þessi öðlingur gaf mér ipod að gjöf, óskatæki tónlistarmannsins því nú get ég tekið alla þá tónlist sem ég þarf á halda, stungið henni í vasann og gengið á vit ævintýranna. svo lét hún fylgja með tæki sem sendir tónlistina í útvarp og hleður poddinn í bílnum :haha: bara til þess að skreyta kökuna með nokkrum kirsuberjum að þá var þetta 30gb litaskjás ipod photo sem ég get notað til að horfa á allar þessar heimildarmyndir sem ég er að niðurhala. snnnniiiild. svo fékk ég skemmtilega gjöf frá náttúrunni, þessi mögnuðu norðurljós sem komu rétt þegar ég var að koma heim. græn, ljós, hvít og blossar af bleiku !! fallegt er besta orðið yfir slíka sýn. svo morguninn eftir ók ég til selfoss með náunga úr artis, sem er neongerð, og spriklaði á þaki byko til að finna galla í rafkerfi aðalskiltisins. sko, það er frekar fyndið að koma til selfoss núna. þetta er orðinn nokkurskonar "niceville" þar sem allir eru í fallegri og hamingjusamlegri fjölskyldu og eiga jeppa og hund. fyndin upplifun að sjá þetta samfélag frá þakinu séð. sáum tildæmis um 7 ára barn sem öskraði og grenjaði á mömmu sína um að vilja alls ekki fara úr byko ! eitthvað bogið við svoleiðis uppeldi held ég. plö, ég er að skrifa einhverja ritgerð sem fáir eiga eftir að nenna að lesa í gegn held ég svo ég held ég stansi hér á þessum ritum mínum, klári jólateið mitt og skelli mér í bólið undir risasængina mína sem er meira að segja stærri en rúmið. gandálfur er að tæla mig til sín með sínum krúttilegu pírðum augum...


» 4 hafa sagt sína skoðun

10.12.2005 03:47:02 / marteinn

nú væri gott að vera duracell kanína...

var víst að vinna 12 og hálfan klukkutíma í dag svo kílójúlin mín eru búin í bili. ég vildi að ég hefði þrek í að segja frá ævintýrum dagsins, sem voru nokkuð glettin, en það verður barasta að koma á morgun er orkan og bullið nær kröftum aftur... en ég ætla líka að fagna 26. jarðhring í þessum mólíkúlmassa er nefnist líkami og hafa gaman af.... svo í anda ríkisstjóra kaliforníu; "i´ll be back" :P

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2005 00:40:06 / marteinn

svo mikið að gera, svo lítill tími...

ég vildi að ég væri með meiri tíma til að blogga en svo er víst ekki í dag.
ég er samt búinn að vera á heljarinnar þeysingi í allan dag og hef gaman af :P maður skilur enn og aftur hví það er svo gaman að vera hér á skerinu, veðrið gefur manni allar sínar skemmtilegustu hliðar og gefur ekkert færi á að plana sig. fyrst logn og 6 stiga hiti, svo rigning, svo vindur ofaná það, svo logn aftur og svo kalt en þó milt veður...gotta love it... var að vinna til hálf átta og skellti mér svo í sund. það lifnaði svo sannarlega yfir kallinum í afgreiðslunni þegar hann sá sundkortið mitt. ég var að finna það aftur eftir um 6 ár í gleymsku. sagði mér að ég ætti að halda vel utan um þetta, það væri orðin safngripur. en margur heldur mig sig, svo ég ætla mér að gefa honum kortið þegar ég klára það :) sem verður frekar fljótt því átakið mitt er alveg að virka, er að stunda sund um 2-3 skipti í viku eftir vinnu. plö, var að átta mig á því að ég á afmæli eftir 2 daga og ég var búinn að plana helgina án þess að muna það. ég á nebblega eftir að klára að mixa lagið sem ég og brjánsi erum að gera svo það geti farið í myndbandarvinnslu og svo er ég að mixa og mastera plötuna hans stebba (steve sampling) og taka upp lag sem ég er að fínísera fyrir bigga frenzy. og þó er ég að ná að semja lögin sem poppa upp í kollinn á mér. það er ótrúlegt hvað maður nær að gera ef maður skipuleggur sig vel. svo er ég búinn að skjóta könnuninni minni ref fyrir rass (skil nú samt ekki hvernig það er gert) því ég er búinn að fá um 7gb af japönsku námsefni og er að fara að byrja á því um jólin :) get ekki beðið...

nú verð ég reyndar að skríða í bólið og búa til orku fyrir morgundaginn..
ég hripa eitthvað sniðugt niður bráðlega aftur.

p.s. ég uppfærði myndasafnið allduglega áðan :P

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 01:02:04 / marteinn

gleymdi að setja þessar með....


hvað er þetta !?

ég er bara ekki viss !?

mmmmmmm sokkate...

já maður verður bara hress af þessum viðbjóð....

gandálfur er mesta kúrdýr sem finnst á jörðinni, helst ætti að gefa honum nýja grein í kattarættartrénu tegund kúrkatta. nýbúinn að láta bora í nefið á sér, taka stýrurnar og taka alla bletti og malar svo mikið að mér varð bumbult.... maður verður að elska það að koma heim í svona móttökur :)


fleiri myndir eru á : http://myndir.ekkert.is/marteinn/            og fleiri á leiðinni...

» 3 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 00:42:31 / marteinn

miðvikudagurinn hinn mikli...

það er margt sem getur gerst á einum degi svei mér.
ég er barasta alltof þreyttur til að fara í smáatriði en ég segi betur frá á morgun.
í stuttu máli -

- útrétta og funda með járnsmiða meistara
- keyra í borgarnes
- festa 8x1 metra skilti utan á bækistöðvar loftorku með furðulegum krana og körfubíl í       um 14-16m vind
- bruna í bæinn og horfa á hluta af leik með young bræðrum
- spila duglegan fótbolta með vinnufélögunum í klukkutíma
- og svo blogga og deyja úr þreytu

bara gaman :P við tókum myndir af húllumhæinu en ég nenni ekki að setja þær allar inn.. me zzzzZZzZZzzzzZZzzleepy.....

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 19:51:00 / marteinn

goðsögning um dökka súkkulaðið...

súri heili.....súri súri heili.... þeð er ótrúlegt hvað heilinn byrjar stundumað starfa skringilega þegar maður gefur honum of lítinn svefn. maður hlær eina mínútuna og er síðan bölvandi öllu illu yfir skrúfu sem vill ekki fara á réttann stað. en þó er lífið yndislegt. ferskur, KALDUR, gustur næðir í reykjavík og gerir mann rjóðann og hressann og náttúran málar þesar rosalegu myndir. ég er feginn deginum sem ég uppgötvaði himininn. ekki það að maður sjái hann ekki á hverjum einsata degi en það er eins og maður eyði engum tíma með honum. svona eins og að vera í skóla og taka aldrei eftir einstaklingnum sem situr fyrir aftan þig þangað til þú talar við hann einn daginn og kemst að því að þessi manneskja gefur þér innblástur í lífið sjálft. ég hugsa líka alltaf þegar ég horfi upp ""þú hefur aldrei séð himininn áður", því hann breytist á hverri tímaeiningu sem líður. alveg eins og allur heimurinn reyndar, mishægt og hratt en gerist þó. svo er ég auðvitað þakklátur fyrir súkkulaði :haha: ég er kominn í smá leiðangur um að finna yfir 80% súkkulaði, sem ég var svo heppinn að finna á flugvellinum í london í sumar. mmmmmmmmm, súkkulaði... ég heyrði nebblega goðsögn um 90% súkkulaði. ef satt er satt að þá tel ég mig vart vera maður með mönnum ef ég bragða ekki á slíkum grip. mmmmmmmm, súkkulaði :haha: svo var ég líka að eignast nýja frænku í nótt, nánar tiltekið kl 00:34 - 05.12.2005. þá fer maður víst í aðra skírnina á stuttum tíma til hildu frænku norður á akureyri. þessu fjölskylda mín er ekkert feimin við að punga út börnum. þriðja barnið hennar frænku og þó er hún ekki nema 3 árum eldri en ég. en nóg um það.... ég á eftir að lýsa þessari yndislegu veru seinna meir þegar ég hef fengið fleiri fréttir. en aftur að bragðlaukunum...... ég er með einhverja áráttu til að smakka allar bragðtegundir frá grunni sínum. eins og vanilla. ég náði mér í vanillustöng oð tróð upp í mig og ekki var hún þar lengi. viðbjóður getur það kallast í sínu upprunalega formi. :P svo krækti ég mér einhverntíman í kanilstöng þegar mamma var að baka. ég held ég hafi verið frekar got skemmtiatriði í um korter er ég emjaði af sársauka eftir að hafa sett alla stöngina upp í kjaftinn og byrjað að bryðja. mmm mmm mmm.... meira verður ekki sagt, mæli eindregið með slíkri upplifun. :P, svo hef ég bragðað myntulauf, karamellu=brenndur sykur, eucalyptus og fleira og fleira... og ekki er ævintýrið búið... mig langar í kakóbaun !! ég hef bara ekki fundið hana ennþá en það kemur að því einn daginn !! plö, er að geispa hérna eins og flóðhestur.... og ætla að tjatta við nýlentan vin á msn-inu.....friður

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2